Allir fundu Fanney nema Fanney fann ei Fanney

miðvikudagur, október 18, 2006

Einangraðar hleranir

,,Ég er hér, gettu hver, apinn!" ó já ég fór í Eden í Hveragerði með Gunnar Franz og Örnu Kristínu. Við skruppum til mömmu og pabba til að forðast ryk, hávaða og alls kyns viðbjóð. Það var gott að komast í hreina loftið og heimsækja ömmu og Kollu. Steypuryk og drulla er eitthvað sem ég verð að lifa við aðeins lengur en núna erum við að ganga frá og pollurinn úti í garði er að fara sem betur fer. Við Árni erum alltaf að læra eitthvað nýtt á hverjum degi og verðum örugglega ágætis iðnaðarmenn eftir svona ca. 10 ár. Þá skrái ég okkur í ástralska þáttinn "The Block". Ég er t.d. búin að einangra nokkur rör og Árni er búinn að einangra rör, leggja rör, aftengja klósettið (jammí), brjóta steypu, gera við leka í uppþvottavélinni og margt fleira. Var einhver þarna úti sem hafði ekki trú á okkur???

Það sem er efst á baugi í þjóðfélaginu í dag er hlerunarmálið. Mér finnst þetta alveg borðleggjandi, það var allt hlerað og það vita allir allt þannig að gleymið þessu bara og haldið áfram að sinna málum sem skipta máli. Hmmm, eru kannski einhverjir miklir hagsmunir í húfi? Er það einhver annar en Davíð Oddson sem á Ísland? Er kolkrabbinn könguló? Var Stundin okkar pólitískt afl, dulkóðaðar útpældar setningar ætlaðar ráðmönnum úti í hinum stóra heimi?
Það er alls staðar hlerað - á Laugarvatni var nóg að skella eyranu upp að veggnum þá heyrði maður allt, já eða bara opna gluggann þá var neðri hæðin coveruð. Ég segi það ekki að málefnin hafi verið ýkja merkileg miðað við heimsmálin en það var samt alltaf gott að vita vissa hluti - hverjir heimsóttu hvern á nóttunni o.s.frv. :-)

Elsku besti Andy minn, of course we want to visit you too - you are the main reason (don't tell Agusta ;-)). Við verðum að finna góðan tíma til að koma og tjútta með ykkur - ég væri alveg til í einn Guinness og feitan Kebab.

4 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Ég segi bara enn og aftur "bara kaupa sér íbúð í Norlingarholtinu"..
Og já hvað þetta hlerunarmál er orðið all svakalega þreytandi.

1:25 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Vá, þið eruð orðin heldur betur reynd í DIY bransanum sé ég. Efnileg í The Block. Þið eruð velkomin til að miðla reynslu ykkar til nýgræðinganna í Stykkishólmi.

Kveðja,
Linda.

4:22 e.h.  
Blogger Kolla said...

Jæja Fanney, á ekki að láta heimsbyggðina vita hvað þú ert að hugsa þessa dagana??
Mig þyrstir í fréttir!!!

10:37 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ja madur spyr sig "hvar er Fanney"

Agusta spyr

8:46 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home